Fréttir
9. Júní 2010
Í sól og sumaryl.
Heimilisfólk í Víðihlíðinni buðu starfsmönnum í
hádegismat í veðurblíðunni í dag (8.júni) enda veðrið til þess.
21. Maí 2010
Starfsaldursheiðranir:
og til marks um það er hve margir starfsmenn eiga langan starfsaldur að baki.
Árið 2008 vor 8 starfsmenn heiðraðir eftir 25 ára eða lengri starfsaldur og í desember 2009 vor
| |
|
25 ár Steinunn Guðmundsdóttir 20 ár Helga Guðmundsdóttir
Jóhannes Þórðarson
Jónína G. Árnadóttir 15 ár Ingveldur Sigurðardóttir
Kristbjörg Richter
Lilja Huld Sigurðardóttir
Sólborg Baldursdóttir
Sigrún Þórarinsdóttir
Steinunn Ferdinandsdóttir
Þórdís Guðmundsdóttir 10 ár Guðbjörg Hákonardóttir
Guðlaug Ósk Sigurjónsdóttir
Halldóra Jónsdóttir
Júlía Kristín Adolfsdóttir
Kristín R. Jónsdóttir
Steinunn Bjarnadóttir
Þorvarður Hjálmarsson
14. Maí 2010
Vormarkaður
Miðvikudaginn 12.maí fór fram handavinnu og sölusýning Dagþjónustu Skálatúnsheimilisins.
Mikið framboð var af fallegum munum sem unnir höfðu verið af heimilismönnum.
Þarna mátti sjá fjölbreytta skrautmuni, fjölnota fatnað sem gerður var úr efnum á þann veg að nýting þeirra var einnig möguleg á röngunni, og afar fallega gerða glermuni.
Gaman var að sjá hve hlutirnir voru vel gerðir og greinilegt að hugmyndaauðgi lá að baki útliti og gagnsemi hlutanna.
Sýningin var í gróðurhúsinu eins og á s.l. ári og hafði það verið skreytt litríkum blöðrum í tilefni dagsins. Gróðurhúsið þótti vera skemmtileg umgjörð um sýninguna.
Hin nýja kryddjurtaframleiðsla mæltist vel fyrir og seldist vel eins og aðrar söluvörur.
Hafberg Þórisson forstjóri Lambhaga hafði lagt lið við byrjun kryddjurtaframleiðslunnar og á hann þakkir skildar fyrir það. Guðlaug Sigurðardóttir hin græna hönd Dagþjónustunnar hefur haft yfirumsjón með framleiðslunni og þeim vísi að trjárækt sem nú prýðir gróðurhúsið.
Listmunir sem sýndu yfirstandandi gos í Eyjafjallajökli seldust vel og svo var einnig um
lyklakippur sem einnig sýndu merki gossins. Það var álit margra sem sáu þessa hluti að þeir ættu sannarlega heima í sölubúðum fyrir erlenda ferðamenn.
Strax og sölusýningin var opnuð kl. 11:00 beið fjöldi fólks við innganginn og ætlaði greinilega ekki að missa af neinu. Stöðug aðsókn var allan daginn og gaman var að sjá heimilisfólk af öðrum sambýlum á Reykjavíkursvæðinu sem notaði tækifærið og heimsótti Skálatún þennan dag.
Hlutirnir voru merktir hverjum framleiðanda og gefur það mununum mikið gildi.
Ástæða er til að þakka mikið og gott framlag starfsmanna Dagþjónustunnar sem greinilega leggja mikinn metnað í aðstoð við heimilismenn við framleiðsluna og framkvæmd sölusýningarinnar. Góður árangur og fjöldi gesta er auðvitað besti þakklætisvotturinn.







7. Maí 2010
Vinnustofur
Nýtt vinnuverkefni á árinu var skönnun á slides myndum og ljósmyndum. Hefur sú vinna gengið mjög vel og vakið áhuga fólks.
Nokkur stór verkefni hafa verið afgreidd og nú hafa verið skannaðar vel á þriðja þúsund myndir auk fjölda eldri mynda í eigu heimilisins.
Einnig var ráðist í lagfæringu gróðurhússins og er þar byrjuð vinna við ræktun kryddjurta.
5. Maí 2010
Skjól - Afþreying og hæfing.
| Með flutningi í Úthlíð og endurbættri aðstöðu er mögulegt að útvíkka starfsemina í Skjólinu og fjölga notendum þjónustunnar. Viðræður standa yfir við Svæðisskrifstofu Reykjaness og fjölskyldusvið Mosfellsbæjar um fleiri utanaðkomandi notendur Dagþjónustu Skálatúnsheimilisins. |
|
29. Apríl 2010
Víðihlíð tekin í notkun.
Sá langþráði draumur rættist að síðustu heimilismenn búandi
á vistdeild Skálatúnsheimilisins fluttu í sambýlið í
Víðihlíð í byrjun aprílmánaðar.
Lokun vistheimilisdeilda varð möguleg með nýbyggingu
_1511446515.jpg)
Vesturhlíðar í október 2009 og nú með endurbótum á
4 íbúðum Víðihlíðar þar sem böð voru alveg endurnýjuð
og almennu viðhaldi sinnt.
Með flutningi starfseminnar í Skjóli í Neðrihlíð Úthlíðar
skapaðist rými fyrir sameiginlegt rými,starfsmenn og
aðstöðu næturvarða á 1.hæð Víðihlíðar.
29. Apríl 2010
Aðalfundur 2010
Aðalfundur Skálatúnsheimilisins var haldinn
að Skálatúni mánudaginn 19.apríl.
Þar voru lagðir fram reikningar ársins 2009 og
framkvæmdastjóri flutti skýrslu um starfsemina
milli aðalfunda 2009 og 2010.
Auk stjórnar, varamanna og fulltrúa aðildarsamtaka
voru gestir fundarins fulltrúar Svæðisskrifstofu
Reykjaness og fulltrúar fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar.
29. September 2009
Langþráður draumur að veruleika
Mánudaginn 21.september, s.l. var nýbyggingin að Skálatúni vígð.
Rúmlega 50 gestir voru viðstaddir þar sem Gunnar Þorláksson framkvæmdastjóri flutti vígsluræðu og rakti aðdraganda byggingarinnar, hönnun og framkvæmd. Sr. Ragnheiður Jónsdótti, sóknarprestur blessaði húsið, heimilismenn og starfsfólk, Helgi Seljan stjórnarmaður flutti frumortar vísur í tilefni dagsins og Þengill Oddsson formaður stjórnar Skálatúnsheimilisins afhenti íbúum hússins lykla og rósir.
Forstöðumaður hússins Jónína G.Árnadóttir fékk einnig afhentan master lykil og blómvönd.
Húsið hlaut nafnið Vesturhlíð.
Þá voru bornar fram veitingar og gestir nutu leiðsagnar íbúa við skoðun hússins.
28. September 2009
Flutningar
Með tilkomu Vesturhlíðar verður veruleg breyting á búsetu heimilisfólks á Skálatúnsheimilinu. Segja má að flestir þeirra færist til á milli húsa og sérstaklega ánægjulegt má telja að við þessar breytingar flytjast 7 heimilismenn af vistdeildum í Úthlíð á sambýlin í Lönguhlíð og Litluhlíð.
Eftir flutningana verða 4 heimilismenn búandi í Neðrihlíð, en þegar er ákveðið að þeir fái pláss á sambýlum þegar lagfæringar á starfsmannaíbúðum í Víðihlíð er lokið, ekki seinna en 1.apríl 2010.
Undirbúningur og framkvæmd ofangreindra tilfærslna hefur reynt verulega á starfsfólk heimilisins, og sannast það sem vitað var hve mikil gæfa það er starfsemi heimilsins að hafa yfir að ráða þeim mannauð sem starfsfólkið er.
Hér er þakkað fyrir þá jákvæðni og lipurð sem starfsfólk hefur sýnt í hvívetna, því ljóst er að nokkur uppstokkun og tilfærsla starfsfólks milli deilda verður við flutningana.
14. Apríl 2009
Hagnýt og góð gjöf !
Í dag færði Þórdís Guðnadóttir,iðjuþjálfi og starfsmaður fyrirtækisins Icepharma, Skálatúnsheimilinu góða gjöf frá fyrirtækinu. Um er að ræða rafskutlu af bestu tegund sem nýtist vel þeim heimilismönnum Skálatúnsheimilisins sem erfitt eiga um gang, á ferðum sínum milli húsa á lóð Skálatúns. Rafskutlan er af gerðinni “Mini Grosser” afar vel búin og auðveld í notkun. Um leið og lýst er ánægju með rafskutluna
eru fyrirtækinu Icepharma færðar fyllstu þakkir fyrir hugulsemina og þann stórhug sem sýndur er með gjöfinni.
Leit
Toppmynd










