Fréttir
29. September 2009
Langþráður draumur að veruleika
Vígsluræðan
Góðir gestir.
Verið hjartanlega velkomin að Skálatúni.
Skálatúnsheimilið hóf rekstur í janúar 1954 og varð því 55 ára fyrr á þessu ári. Uppbygging staðarins undanfarin ár hefur miðast við að búa sem best að heimilismönnum, sem meðal annars leiddi til þess að allir hafa búið einir í herbergjum í mörg ár.
Tilefnið í dag er vígsla nýbyggingar sem hlotið hefur nafnið Vesturhlíð.
Aðdragandi að byggingu hússins er það markmið Skálatúnsheimilisins að búa sem best að þeim heimilismönnum sem okkur er trúað fyrir, og sú ákvörðun stjórnar heimilisins að leggja sem fyrst niður þær vistdeildir sem enn eru starfræktar að Skálatúni.
Nokkrar umræður urðu um staðsetningu hússins, en niðurstaðan varð sú með tilliti til framtíðarreksturs Skálatúns að húsið yrði byggt á norðvesturhluta lóðarinnar.
Fjármögnun hússins var úr fjárvörslureikningum Skálatúnsheimilisins sem þó höfðu rýrnað nokkuð í bankahruninu, og að hluta með láni úr Íbúðalánasjóði. Heildarkostnaður byggingarinnar er um 200 milljónir.
Við hönnun hússins var leitað til Teiknistofunnar Óðinstorgi, enda góð og áralöng reynsla af starfi Helga Hjálmarssonar arkitekts og Vífils Oddssonar verkfræðings fyrir Skálatúnsheimilið. Hönnun raflagna annaðist Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar og hönnun lóðar var í höndum Landlags.
Eftirlit með framkvæmdum fyrir hönd Teiknistofunnar hefur verið á hendi
Guðjóns Davíðssonar, byggingameistara.
Í útboði vegna byggingarframkvæmda reyndist byggingafélagið Spænir vera með hagstæðasta tilboðið og hafa þeir nú skilað fullbúnu og vönduðu húsi.
Forsvarsmenn fyrirtækisins þeir Óskar Þór Ólafsson og Ólafur Sæmundsson hafa með vandvirkni og snyrtimennsku unnið verkið með góðum hópi undirverktaka, sem hver á sínu sviði hafa skilað verkefnum með sóma.
Í umsögn Íbúðalánasjóðs við úttekt íbúðanna kemur fram að bygging hússins hafi tekist mjög vel og væri til sóma fyrir þá sem verkið unnu.
Hér er vert að þakka vinnu og ábendingar starfsmanna Skálatúnsheimilisins
við þarfagreiningu starfseminnar í húsinu, en þar hefur mætt mest á Önnu Kristínu Gunnlaugsdóttur, sviðsstjóra og Jónínu G. Árnadóttur, forstöðumanni hússins.
Meðalaldur heimilismanna á Skálatúni fer stöðugt hækkandi, enda flestir dvalið hér frá upphafi rekstrar árið 1954, eða árunum þar á eftir. Einkenna öldrunar hafa gert vart við sig á síðustu árum, parkinsonveiki, alzheimereinkenni og minnkandi geta til þátttöku í dagþjónustu eru afleiðingar þess.
Í framtíðinni er m.a. hægt að hugsa sér aukna áherslu á aðbúnað aldraðs fólks með þroskahömlun, skammtímavistun og hvíldarinnlagnir.
Í dag er ástæða til að gleðjast. 7 heimilismenn fá hér afhentar glæsilegar íbúðir til afnota með það að markmiði, að á hæfni þeirra til sjálfstæðrar búsetu verði reynt eins og mögulegt er.
Með tilkomu þessa húss verða töluverðar hreyfingar heimilismanna milli húsa, og fækkun á vistheimili leiðir til þess að enn um sinn verða 4 heimilismenn á vistdeild í Neðrihlíð. Vonir standa til þess að endanleg lokun þeirrar deildar verði möguleg þegar sjálfstæðar íbúðir í starfsmannahúsi verða teknar í notkun, eða ekki seinna en 1.apríl 2010.
Ég tel það mikið gleðiefni að sjá fyrir lokun vistheimilisins og að það skyldi vera að frumkvæði og kostnað okkar sjálfra án utanaðkomandi aðstoðar er
kraftaverk.
Um leið og ég óska heimilismönnum til hamingju með nýju íbúðirnar
vil ég árna þeim og öllum þeim starfsmönnum sem hér eiga eftir að starfa, farsældar og vellíðunar.
Öllum þeim sem lagt hafa lið við hönnun og undirbúning byggingarinnar flyt ég bestu þakkir, svo og öllum verktökum fyrir vel unnin störf og vönduð vinnubrögð.
Um leið og ég gef sóknarprestinum Ragnheiði Jónsdóttur orðið til að fullnægja þeim góða sið að blessa hvert nýtt hús sem tekið er í notkun hér á Skálatúni, vil ég óska öllum hjartanlega til hamingju með nýja sambýlið hér í Vesturhlíð.
Leit
Toppmynd










